Fréttir - 27. júlí 2010
Fréttir - 15. júlí 2010
„Verkalýðshreyfingin á Íslandi þarf að gæta þess að alþjóðleg fyrirtæki noti Ísland ekki til félagslegra undirboða – þ.e. hóti ekki að flytja starfssemi sína til Íslands, gefi launafólk ekki eftir umsamin kjör sín,“ segir í bréfi sviðstjóra iðnaðarsviðs Starfsgreinasambandsins, Sverris Albertssonar til starfsfólks Century Aluminium, - Locals 9433 þar sem lýst er stuðningi við baráttu þeirra fyrir því að viðhalda þeim lífskjörum sem þeir hafa þegar samið um.
Iðnaðarsvið Starfsgreinasambands Íslands hefur verið síðustu vikur í sambandi við félagsmenn „United Steel Workers – Local 9433“ í Hawesville, Kentucky, í Bandaríkjunum, en þar rekur Century Aluminium, fyrirtækið sem á og rekur Norðurál og undirbýr byggingu álvers í Helguvík, álver.
Kjarasamningar við fyrirtækið hafa verið lausir síðan í apríl og síðasti frestur til að ganga frá samningi rann út í maí. Líkur á verkföllum eða því að verksmiðjan loki eykst því dag frá degi.
Century Aluminium krefst þess að starfsmenn samþykki verulega skerðingu sjúkratrygginga og að lífeyrisþegar verði sviptir sjúkratryggingum í framtíðinni. Þá vill fyrirtækið afnema samráð starfsmanna og stjórnenda sem verið hefur. Skerðing sjúkratrygginga starfsmanna eykur mjög á félagslegt óöryggi þeirra og skerðir lífskjör umtalsvert.