Fréttir - 6. september 2010
Fulltrúaráð NNN, Norsk Nærings- og Nytelsesmiddelarbeiderforbund, sem eru systrasamtök Starfsgreinasambandsins í Noregi heimsækja SGS n.k. fimmtudag, m.a. til að ræða stöðu og horfur í kjara- og atvinnumálum á Íslandi, einkum ný tækifæri í matvælavinnslu. Þá verður aðildarumsókn Íslands að ESB einnig á dagskrá en það málefni vekur áhuga í Noregi. Það er starfsfólk í landbúnaðartengdum matvælaiðnaði og fiskvinnslu sem á aðild að NNN. NNN er samstarfsaðili SGS í Nordisk Union og evrópusamtökunum EFFAT.
Hér eru auðfúsugestir á ferð, sem láta sig málefni okkar varða enda hafa tengsl og vináttubönd verið með SGS og NNN um árabil. Formaður SGS, Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri SGS, Skúli Thoroddsen og sviðstjóri matvælasviðs SGS, Halldóra Sveinsdóttir taka á móti gestunum auk þess sem Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ ræðir við hópinn. Norðmennirnir munu einnig heimsækja landsbyggðina og taka hús á Húsvíkingum í sinni för og koma við í Grindavík.
Þeir Hans Olav Nilson sem er formaður sænska matvælasambandsins, LIVS, Nordisk Union og alþjóðasamtakanna IUF ásamt Pauli Kristiansson framkvæmdastjóra Nordisk Union verða einnig á Íslandi í þessari viku m.a. til að undirbúa þing Nordisk Union sem haldið verður á Íslandi næsta ár.
Bæði hin norrænu og evrópsku heildarsamtök launafólks sem Starfsgreinasambandið er aðili að hafa heitið SGS og íslensku launafólki stuðningi vegna aðildaviðræðna Íslands við ESB og reyndar fagnað því sérstaklega að þær viðræður séu nú hafnar. Málefni aðildarviðræðna Íslands og samnorræn kjaramál verða einnig rædd við þá Hans Olav og Pauli.
Fréttir - 24. ágúst 2010
Enn á ný verður krafan sú „að negla niður kjaraskerðinguna“ til þess að bjarga „afkomu þjóðarbúsins“. - Útvegsmenn greiða sér arð í evrum meðan alþýðan er kúguð til kjaraskerðinga með ónýtri krónu.
Allar götur frá miðri síðustu öld hefur Ísland verið verðbólguland, þar sem sífelldum vandkvæðum var háð að halda verðgildi krónunnar sæmilega stöðugu. Reyndar má fara enn lengra aftur og segja sem svo að verðgildi krónunnar gagnvart t.d. dönsku krónunni hafi hrunið úr einni á móti einni árið 1904 í eina danska á móti tvöþúsund íslenskum árið 2010 (20 nýkrónur eftir gjaldmiðlabreytinguna 1980/81). Kjarabaráttan á Íslandi er að þessu leytinu til mörkuð af gengisfellingum, verðbólgu og stöðugri varnarbaráttu til að viðhalda kaupmætti í fjandsamlegu umhverfi óstöðugrar krónu. Mál er að linni.
En víkjum nánar að sögunni.
Verðbólgan var um 13% að jafnaði á viðreisnarárunum 1959-1971. Lengi var markmið stjórnvalda að halda verðbólgu innan við 10% en eftir 1973 reyndist álíka erfitt að halda henni innan við 40%. Hún fór í um 50% 1974 og um 1980 stóð glíman við 60%.