30. nóvember 2015
Starfsnám fyrir þernur
Í byrjun nóvember hófst nám fyrir þernur í gegnum samstarfsverkefni Starfsafls fræðslusjóðs, Eflingar stéttarfélags, Samtaka ferðaþjónustunnar, IÐUNNAR fræðsluseturs og hótelanna Icelandair Hotels og Center Hotels. Markmið námsins er að auka faglega færni herbergisþerna í starfi. Námið er samtals 60 kennslustundir og skiptist í tvær jafn langar 30 kennslustunda lotur. Möguleiki er að bæta þriðju n…
27. nóvember 2015
Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við sveitarfélögin
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga hefst kl. 08:00 þann 1. desember og stendur hún til miðnættis 8. desember. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar daginn eftir. Atkvæðagreiðslan verður með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við sveitarfélögin á kjörskrá. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofum sín…
25. nóvember 2015
Misrétti kynjanna mikið á vinnumarkaði
Í dag er haldið jafnréttisþing og skýrsla velferðarráðuneytisins um jafnréttismál á Íslandi er gefin út í tengslum við það. Sérstaklega er fjallað um kynjamisrétti á vinnumarkaði; bæði hvað varðar lárétt (skipting á milli starfsgreina) og lóðrétt (skipting á milli ábyrgðastaða). Kynbundinn launamunur fer minnkandi en illa gengur að loka bilinu. Árið 2008 mældist óskýrður launamunur kynjanna 7,8% e…
25. nóvember 2015
Atvinnuleysi mældist 3,8% í október
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnka…
24. nóvember 2015
Desemberuppbót 2015
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 201…