28. ágúst 2015
Atvinnuþátttaka 84,3%
Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, fyrir 2. ársfjórðung 2015, voru að jafnaði 196.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði sem jafngildir 84,3% atvinnuþátttöku. Frá öðrum ársfjórðungi 2014 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 6.400 og atvinnuþátttakan aukist um 1,1 prósentustig eða úr 83,1%. Atvinnuþátttaka kvenna var 81% en karla 87,5%. Borið saman við sama ársfjórðung 2014 þá var…
25. ágúst 2015
Samtök starfsfólks í matvælaiðnaði á Norðurlöndum þingar
Halldóra Sveindsdóttir og Drífa Snædal sóttu þing NU-LIVS (Norræn samtök starfsfólks í matvælaiðnaði) í Stokkhólmi dagana 17.-18. ágúst 2015. Auk hefðbundinna þingstarfa voru samþykktar nokkrar ályktanir og bar þar hæst ályktum um afleiðingar innflutningsbanns Rússa gagnvart Evrópuríkjum. Lýst var áhyggjum af afleiðingum innflutningsbannsins og sent ákall til stjórnmálamanna á Evrópuvettvangi um a…
14. ágúst 2015
Fulltrúar SGS og LS funda
Í morgun hittust fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Landssambands smábátaeigenda (LS) til að ræða nýjan kjarasamning milli aðila. Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum SGS, Guðrúnartúni 1. Eftir ágætar umræður var ákveðið að boða til nýs fundar næstkomandi þriðjudag með það að markmiði að ná niðurstöðu um nýjan samning. SGS mun upplýsa um framgang mála þegar þar að kemur.
7. ágúst 2015
Ertu búin/n að fá launahækkun?
Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn sína á að frá og með 1. maí síðastliðnum hækkuðu laun félagsmanna SGS samkvæmt nýjum kjarasamningum. Launahækkunin átti að koma til útborgunar fyrst þann 1. júlí sl., ásamt leiðréttingu fyrir maí. Við hvetjum félagsmenn til að hafa samband við sitt stéttarfélag ef launahækkunin hefur ekki skilað sér. Nýir kauptaxtar SGS fyrir starfsmenn á almennum vinnu…