Fékkst þú launahækkun um síðustu mánaðarmót?

Nýr kjarasamningur aðildarsamtaka ASÍ við SA frá 21. janúar 2016 var samþykktur þann 24. febrúar síðastliðinn. Samkvæmt nýjum samningi kemur 6,2% almenn launahækkun, að lágmarki kr. 15.000 á mánuði, í stað 5,5% launaþróunartryggingar.  Launahækkunin gildir frá 1. janúar 2016 í stað 1. maí 2016, sem þýðir að leiðrétta þarf laun fólks aftur í tímann. Starfsgreinasambandið vill í ljósi þessa minna félagsmenn á að skoða vel launaseðla sína til að ganga úr skugga um að launahækkanirnar hafi örugglega skilað sér. Ef einhverjar spurningar vakna ættu félagsmenn ekki að hika við að hafa samband við sitt stéttarfélag. -Nýir kauptaxtar SGS og SA (almennur vinnumarkaður)
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)