Fréttir af samningamálum

Eins og fram hefur komið skipuðu aðilar á opinbera vinnumarkaðnum sérstakan vinnuhóp til að ræða vaktavinnu í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður. Markmið hópsins er að leggja fram heildstæðar breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem taki á núverandi fyrirkomulagi og bregðist við margvíslegum vandamálum sem eru í því.

Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum SGS, BSRB, BHM, FÍH af hálfu launafólks og fulltrúum samninganefnda ríkis, sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, af hálfu atvinnurekenda. SGS hefur á undangengnum vikum gagnrýnt nokkuð vinnubrögðin hjá hópnum en undanfarnar vikur hefur orðið breyting þar á. Samninganefnd SGS hefur verið kölluð saman til fundar þriðjudaginn 28. janúar til að fara yfir hugmyndir hópsins og hvar á vegi vinnan er stödd.

Ríkissáttasemjari hefur boðað viðræðunefnd SGS og samninganefnd ríkisins til formlegs fundar hjá sér síðdegis þriðjudaginn 28. janúar. Er það í kjölfar þess að SGS vísaði samningaviðræðum við ríkið til sáttasemjara í síðustu viku eins og kunnugt er.

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag