Greitt úr Félagsmannasjóði SGS

Félagsmenn aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS. Í dag, 1. febrúar 2021, verður greitt úr sjóðnum í fyrsta skipti. Þeim félagsmönnum sem komið hafa nauðsynlegum upplýsingum á framfæri við sitt stéttarfélag eða SGS, og launagreiðandi skilað framlögum munu berast greiðslur í dag.  

Berist ekki greiðslur er viðkomandi bent á að hafa samband við SGS með tölvupósti á netfangið sgs@sgs.is. Miðað er við að greiða aftur úr sjóðnum 1. mars næstkomandi. 

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag