Kjarasamningar SGS á prentformi

Allir helstu kjarasamningar Starfsgreinasambandsins eru nú tilbúnir á prentuðu formi. Þeir samningar sem eru komnir úr prentun eru heildarkjarasamningur SGS og SA, samningur SGS við Bændasamtök Íslands, samningur SGS við Landssambands smábátaeigenda og nú síðast kom samningur SGS við ríkið úr prentun. Nú vantar aðeins prentútgáfu af samningi SGS við Samband íslenskra sveitarfélaga, en verið er að leggja lokahönd á þá útgáfu. Hafi félagsmenn hug á að nálgast eintak af umræddum samningum er þeim bent á að hafa samband við sitt stéttarfélag eða heimsækja skrifstofu þess. Eins og áður má nálgast alla samninga sambandins á rafrænu formi hér á vefsíðunni undir „Kaup & kjör“.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag