Kjarasamningar SGS á prentuðu formi
Starfsgreinasambandið vill vekja athygli félagsmanna á að nú má nálgast hluta kjarasamninga sambandsins á prentuðu formi. Þeir samningar sem eru komnir úr prentun eru heildarkjarasamningur SGS og SA, samningur SGS við Bændasamtök Íslands og samningur SGS við Landssambands smábátaeigenda. Aðrir samningar eru í vinnslu og koma vonandi úr prentun á næstu vikum.
Hafi félagsmenn hug á að nálgast eintak af umræddum samningum er þeim bent á að hafa samband við sitt stéttarfélag eða heimsækja skrifstofu þess, en þeir munu berast félögunum á næstu dögum. Eins og áður má nálgast alla samninga sambandins á rafrænu formi hér á vefsíðunni undir "Kaup & kjör".