Skiljum engan út undan

Starfsgreinasamband Íslands ítrekar nauðsyn þess að aðgerðir stjórnvalda í kjölfar Covid-19 nái til allra, og að afkomuöryggi hópa, s.s. einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma, óléttra kvenna og foreldra sem hafa misst úr vinnu vegna takmarkaðs leik- og grunnskólastarfs, verði tryggt. Það er aldrei hægt að una við það að hópar félagsmanna okkar, sem hvað veikast standa, séu skildir eftir í aðgerðum stjórnvalda.

Formannafundur Starfsgreinasambandsins minnir jafnframt á mikilvægi þess að álagsgreiðslur til framlínustarfsfólks í heilbrigðisgeiranum nái til allra sem þar starfa t.d. við þrif, umönnun og aðhlynningu. Þetta fólk hefur brugðist við erfiðum og krefjandi aðstæðum af miklum dugnaði og elju og á svo sannarlega skilið að fá sinn skerf af umræddum álagsgreiðslum. Þetta á einnig við um starfsfólk undirverktaka, einkarekinna hjúkrunarheimila og annarra, sem sinnir mörgum af þessum störfum á einstökum stofnunum. Skiljum engan út undan.

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag