Eitt af hlutverkum SGS er að vera leiðandi afl innan verkalýðshreyfingarinnar og vettvangur umræðu um þróun samfélagsins í þágu launafólks. Sambandið veitir reglulega umsagnir og ályktar um fjölmörg málefni tengd launafólki í þeim tilgangi að standa vörð um þeirra áunnu réttindi og bæta kjör sinna félagsmanna. Hér að neðan má nálgast umsagnir og ályktanir sem sambandið hefur sent frá sér í gegnum tíðina.