7. maí 2012
Framhaldsþing Starfsgreinasambands Íslands
Starfsgreinasamband Íslands mun halda framhaldsþing sambandsins fimmtudaginn 10. maí n.k. á Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir). Þingið, sem er undir kjörorðinu „Horft til framtíðar“, hefst kl. 10:00 með ávarpi Björns Snæbjörnssonar, formanns sambandsins. Megináherslur þingsins verða umræður og afgreiðsla nýrra reglugerða og laga SGS, en undanfarna mánuði hefur Starfshópur starfshá…
2. maí 2012
Nýr starfsmaður á skrifstofu SGS
Mynd_1229277Árni Steinar Stefánsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur hjá Starfsgreinasambandinu frá og með 1. maí. Árni kemur til með að sinna ráðgjöf og þjónustu við aðildarfélög SGS á sviði kjara-, vinnumarkaðs-, og starfsmenntamála sem og almennri hagsmunagæslu fyrir verkafólk. Einnig mun Árni sinna verkefnum tengdum ákvæðisvinnu- og kaupaukakerfum, hafa umsjón með vefsíðu sambandsins, sinna skýrslugerð…
1. maí 2012
Formaður SGS á Ísafirði á baráttudegi verkalýðsins
Í dag eru 89 ár frá því að íslenskt verkafólk fór í sína fyrstu kröfugöngu á alþjóðlegum baraáttudegi verkalýðshreyfingarinnar. Allar götur síðan hefur launafólk safnast saman til að minnast þess sem hefur áunnist í baráttunni fyrir bættum kjörum, en einnig ítreka að baráttan fyrir auknu réttlæti og betir kröfum er þrotlaus. Í ár var Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins aðal ræðumað…
30. apríl 2012
Vinna er velferð
Á morgun 1. maí mun verkafólk víðsvegar um land berjast fyrir bættum kjörum á baráttudegi verkalýðsins. Kjörorð dagsins er "Vinna er velferð". Í dag eru enn þúsundir launafólks án atvinnu, en bætt atvinnuástand er án efa mikilvægasta hagsmunamál íslensks launafólks í dag. Hátíðarsamkomur og kaffisamsæti verða að minnsta kosti á 37 stöðum á landinu á 1. maí í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. M…
20. apríl 2012
Umsögn Starfsgreinasambands Ísland við frumvörpum til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjald
Starfsgreinasamband Íslands hefur sent inn umsögn við frumvörpum stjórnvalda um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Vegna þess hvað frumvörpin eru nátengd var aðeins sent inn ein umsögn um bæði frumvörpin. Innan fjölmennra samtaka eins og SGS hafa verið mjög skiptar skoðanir um þessi frumvörp og hver áhrif þeirra verða á fiskvinnslufólk og byggðir landsins. SGS telur margt jákvætt í frumvörpunum.…