18. maí 2016
Orlofsuppbót 2016
Starfsgreinasamband Íslands vill minna launafólk á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót. Full uppbót árið 2016 er 44.500 kr. Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu 1. maí 2015 – 30. apríl 2016 eiga rétt á fullri uppbót, en annars greiðist hún í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og reiknast orlof ekki ofan á orlofsuppbótina.
Starfsfól…
18. maí 2016
Formannaskipti hjá Samstöðu - Guðmundur tekur við af Ásgerði
Aðalfundur Stéttarfélagins Samstöðu var haldinn 10.maí síðastliðinn í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Á fundinum hætti Ásgerður Pálsdóttir sem formaður félagsins og við tók Guðmundur Finnbogason, en Ásgerður hafði gengt formennsku í félaginu síðustu 15 árin. Guðmundur er svo sannarlega ekki reynslulaus þegar kemur að málefnum félagsins, en hann hefur verið formaður sjómannadeildar Samstöð…
17. maí 2016
Guðrún Elín Pálsdóttir nýr formaður Verkalýðsfélags Suðurlands
Aðalfundur Verkalýðsfélags Suðurlands var haldinn að Heimalandi, Vestur-Eyjafjöllum, þann 27.apríl síðastliðinn. Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf áttu sér stað formannaskipti í félaginu. Már Guðnason lét af embætti eftir að hafa gengt hefur formennsku í félaginu frá stofnun þess árið 2001 og við tók Guðrún Elín Pálsdóttir. Enginn bauð sig fram á móti Guðrúnu til formanns félagsins og var hún…
17. maí 2016
Hrakvinna birtist víða
Töluverð umfjöllun hefur verið undanfarið um hrakvinnu í ýmsum myndum, þ.e. vinnu sem brýtur í bága við lög, kjarasamninga og skilyrði um aðbúnað. Margir virðast eiga erfitt með að greina á milli sjálfboðastarfa, vistráðningar (AU-pair) og eðlilegrar vinnu. Starfsgreinasambandið hefur því tekið saman skilyrði fyrir vistráðningu annars vegar og umfjöllun um sjálfboðastörf hins vegar eftir því sem u…
17. maí 2016
Gagnaleki víðar en frá Panama
Viðræður á milli Evrópu og Bandaríkjanna um fríverslun hafa farið svo leynt að það var bannað að birta nokkur skjöl úr viðræðunum næstu 30 árin. Í síðustu viku aprílmánaðar varð hins vegar leki sem sýndi fram á að ótti verkalýðsfélaga um innihald samningsins á við rök að styðjast. Opnað er fyrir í matvælaflutning á milli svæðanna og til dæmis má ef samningurinn verður undirritaður flytja erfðabrey…