27. nóvember 2017
Fræðsludagur félagsliða
Starfsgreinasamband Íslands boðaði til fræðslufundar fyrir félagsliða af öllu landinu þann 22. nóvember síðastliðinn. Mikil ásókn var á fundinn eins og jafnan er, en þetta er í fjórða sinn sem SGS heldur slíkan viðburð. Að þessu sinni var lögð áhersla á hópastarf, hvernig félagsliðar geti styrkt sig félagslega og faglega auk þess að styrkja stöðu stéttarinnar út á við. Rúmlega 40 félagsliðar tóku…
23. nóvember 2017
3,6% atvinnuleysi í október
Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2017, sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,6%. Samanburður mælinga fyrir október 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka fólks …
23. nóvember 2017
Við erum ekki á matseðlinum!
Um helmingur kvenna starfandi í þjónustugreinum verða fyrir áreitni á vinnustað af hendi viðskiptavina, samstarfsfélaga, birgja eða yfirmanna, um fjórðungur karla verður fyrir slíkri áreitni. Konur upplifa skerta öryggistilfinningu vegna áreitninnar en hún virðist ekki að sama skapi hafa áhrif á karla sem verða fyrir áreitni. Að koma í veg fyrir áreitni á vinnustöðum er því öryggismál og ber að fa…
14. nóvember 2017
Desemberuppbót 2017
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Upphæðir desemberuppbót…
8. nóvember 2017
Hvað er kynferðisleg áreitni?
Starfsgreinasambandið hefur gefið út einblöðung fyrir starfsfólk stéttarfélaga og trúnaðarmenn um kynferðislega áreitni og viðbrögð við henni. Einblöðungurinn er hluti af fræðslustarfi sambandins gagnvart stéttarfélögum og trúnaðarmönnum og miðar að því að gera félög betur í stakk búin til að taka á þeim málum sem upp koma. Í einblöðungnum er fjallað um hvað kynferðisleg áreitni þýðir, þ.e. almen…