13. október 2011
Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við setningu þings SGS
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði í ávarpi sínu við setningu þings Starfsgreinasambandsins að það væri mikilvægt að verkalýðshreyfingin og stjórnvöld væru í sama liði til að vinna þjóðina út úr kreppunni. Hann hrósaði verkalýðshreyfingunni fyrir gott innlegg og samstarf í vinnumarkaðsúrræðum á undanförnum misserum. Ávarp Guðbjarts Hannesonar velferðarráðherra má lesa hér. Athygli skal v…
13. október 2011
Setningarávarp Björns Snæbjörnssonar, formanns SGS á þingi sambandsins
Framtíð Starfsgreinasambandsins var Birni Snæbjörnssyni formanni hugleikið í setningarræðu hans á 3. þingi SGS sem hófst í morgun. Í ræðu sinni sagði hann m.a. "Ég tel að Starfsgreinasambandið sé nauðsynlegur vettvangur fyrir íslenskt verkafólk. Eitt af meginverkefnum þessa þings verður að ræða framtíð sambandsins. Ef Starfsgreinasambandið verður lagt niður þá mun það veikja  samstöðu launafó…
6. október 2011
Þing Starfsgreinasambands Íslands
Starfsgreinasamband Íslands mun halda þing sambandsins dagana 13-14 október næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Þingsetning hefst kl. 11:00 með ávarpi formanns og gesta. Kjörorð þingsins er "Horft til framtíðar", en megináherslan verður á skipulagsmál sambandsins - verkefni og hutverk. Einnig verður umfjöllun um kjara- og atvinnumál, enda skipta þau mál félagmenn SGS miklu máli. Þingið munu sitj…
13. september 2011
Kjarasamningur við Bændasamtök Íslands
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands fyrir hönd aðildarfélaga hefur lokið samningum við Bændasamtökin um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur landbúnaðarstörf. Samningurinn er á svipuðum nótum og kjarasamningar SGS við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá og með 1. júní 2011. Samningurinn í heild sinni er hér
22. ágúst 2011
Þing norræna matvælasambandsins hafið á Selfossi
Þing Nordisk Unionen hófst í morgun á Selfossi. Þingið sitja 55 fulltrúar stéttarfélaga frá öllum Norðurlöndunum innan matvælaframleiðslu. Í upphafi þingsins vottuðu þingfulltrúar fórnarlömbum voðaverksins á Úteyju samúð sína með einnar mínútu þögn. Meginþema þingsins er aukin samkeppni á vinnumarkaði sem hefur leitt til félagslegra undirboða og mikils óöryggis á vinnumarkaði. Þingið krefst þ…