1. júní 2012
Magnús Már kjörinn nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur
Magnús Már Jakobsson hefur verið kjörinn nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur. Hann bauð sig fram gegn sitjandi formanni, Benóný Benediktssyni sem hafði stýrt félaginu í 28 ár, og hafði betur með 40 atkvæðum gegn 7. Magnús Már hefur starfað sem öryggis- og gæðafulltrúi í Bláa lóninu undanfarin ár. "Ég bauð mig fram vegna þess að verkalýðsmál eru mér hugleikin og ég hef mikinn áhuga að vi…
31. maí 2012
Formannafundur SGS á Akranesi
Föstudaginn 8. júní næstkomandi hefur verið boðað til formannafundar  á Akranesi. Þetta er fyrsti formannafundur SGS samkvæmt nýju skipulagi sambandsins sem samþykkt var á framhaldsþingi sambandsins í byrjun maí. Fjölmörg mál eru á dagsská fundarins, s.s. verkaskipting innan sambandsins, umsögn SGS við nýrri stefnu ASÍ í lífeyrismálum og kjaramál. Þá munu formenn aðildarfélaganna gefa skýrslu…
16. maí 2012
Ný evrópusamtök stofnuð
Í dag voru stofnuð ný evrópusamtök starfsfólks í iðnaði og framleiðslu. Verða samtökin, sem bera nafnið Industry all,  þau stærstu sinnar tegundar í Evrópu, með yfir sjö milljónir félagsmanna innan sinna raða. Samtökin verða til við samruna þriggja eldri evrópusamtaka á sviði iðnaðar og framleiðslu, þ.á.m.  Evrópusamtök launafólks í námu-, efna- og orkuiðnaði (EMCEF), sem  Starfgreinasamband…
14. maí 2012
Þing alþjóðasamtaka verkafólks í matvæla- og ferðaþjónustugreinum
26. þing IUF, alþjóðasamtaka verkafólks í matvæla- og ferðaþjónustugreinum verkalýðsfélaga, verður sett á morgun í Genf í Sviss. Þingið stendur yfir í þrjá daga og er yfirskrift þess ,,Organize, Fight and Win!”. Drög að dagskrá þingsins má nálgast hér. Helstu stefnumál á dagskrá þingsins eru innri skipulagsmál, matur og sjálfbærni í alþjóða samhengi, baráttan gegn hættulegum störfum, og hvern…
10. maí 2012
Vel heppnuðu framhaldsþingi SGS lokið
Vel heppnuðu framhaldsþingi Starfsgreinasambandsins er nú lokið. Á þinginu voru samþykkt ný lög sambandsins þar sem umtalsverðar breytingar eru gerðar á stjórnskipulagi, hlutverki og starfsemi sambandsins. Að auk voru samþykktar fjórar nýjar reglugerðir sem er ætlað að styrkja starfsemina, efla upplýsingamiðlun SGS og skilgreina verkaskiptingu milli aðildarfélaganna og sambandsins. Á þinginu var B…