2,4% atvinnuleysi í nóvember

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2016, sem jafngildir 84,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.200 starfandi og 4.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,4%. Samanburður mælinga fyrir nóvember 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.500 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,2 stig. Atvinnulausum fækkaði um 2.100 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 1,2 prósentustig. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)