2,7% atvinnuleysi í október

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.600 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2016, sem jafngildir 82,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.200 starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,7%. Samanburður mælinga fyrir október 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,7 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 12.900 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.700 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,7 prósentustig. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)