3,6% atvinnuleysi í október

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2017, sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,6%. Samanburður mælinga fyrir október 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka fólks stendur í stað. Þó að starfandi fólki hafi fjölgað um 4.900 lækkaði hlutfall þeirra af mannfjölda um 0,8 prósentustig. Atvinnulausir eru um 2.000 fleiri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra jókst um 0,9 prósentustig. Alls voru 44.300 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 1.700 manns frá því í október 2016 en þá voru þeir 42.600. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag