3,9% atvinnuleysi í maí

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 209.300 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í maí 2018, sem jafngildir 83,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 201.100 starfandi og 8.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,1% en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,9%. Samanburður mælinga fyrir maí 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 6.000 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 8.100 manns en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 0,3 prósentustig. Atvinnulausir voru um 2.100 færri en í maí árið 2017 og hlutfall þeirra lækkaði um 1,2 prósentustig. Alls voru 41.700 utan vinnumarkaðar í maí 2018 og hafði þeim fjölgað um 5.100 manns frá því í maí 2017 þegar þeir voru 36.600. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag