41. þing ASÍ afstaðið

Þriggja daga þingi Alþýðusambands Íslands lauk síðastliðinn föstudag, en þingið var að þessi sinni haldið á Hilton Reykjavík Nordica. Þingið sátu rúmlega 300 þingfulltrúar frá 51 félagi innan ASÍ. Þar af komu 109 þingfulltrúar frá félögum innan Starfsgreinasambandsins. Gylfi endurkjörinn Gylfi Arnbjörnsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambandsins á þinginu, en Gylfi hlaut 74,5% eða 201 atkvæði en Ragnar Þór Ingólfsson 69 atkvæði eða 25,5%. Gylfi var fyrst kjörinn forseti ASÍ árið 2008 og hann er því að hefja fjórða kjörtímabil sitt í embætti forseta. Sigurður Bessason formaður Eflingar og Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR voru kjörin í embætti varaforseta ASÍ, en þau voru sjálfkjörin í embættið þar sem ekki bárust nein mótframboð. Bæði héldu kröftugar ræður þar sem þau brýndu félagsmenn til samstöðu, ábyrgðar og tala einum rómi í stórum málum. Ný miðstjórn kjörin Á þinginu var ný miðstjórn ASÍ var einnig kjörin til tveggja ára á þinginu. Hún er þannig skipuð: LÍV                            Guðbrandur Einarsson, VS LÍV                            Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, VR LÍV                            Eiður Stefánsson, FVSA LÍV                            Benoný Valur Jakobsson,VR SGS                           Sverrir Albertsson, Afl starfsgreinafélag SGS                           Björn Snæbjörnsson, Eining-Iðja SGS                           Sigurrós Kristinsdóttir, Efling stéttarfélag SGS                           Signý Jóhannesdóttir, Stéttarfélag Vesturlands RSÍ                           Kristján Snæbjarnarson, FRV Samiðn                    Hilmar Harðarson, FIT SSÍ                            Sævar Gunnarsson, Sjómannafélag Grindavíkur Bein aðild               Guðmundur Ragnarsson, VM   Varamenn í miðstjórn LÍV                             Kristín M. Björnsdóttir, VR LÍV                             Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, VR LÍV                             Gils Einarsson, VMS LÍV                             Bjarni Þór Sigurðsson,VR LÍV                             Hjörtur Geirmundsson, Verslunarmannafég Skagafjarðar SGS                            Kolbeinn Gunnarsson, Verkalýðsfélagið Hlíf SGS                            Finnbogi Sveinbjörnsson, Verkalýðsfélag Vestfirðinga SGS                            Halldóra Sveinsdóttir, Báran - stéttarfélag SGS                            Fanney Friðriksdóttir, Efling stéttarfélag SGS                            Magnús S. Magnússon, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis RSÍ                             Jens Heiðar Ragnarsson, FÍR Samiðn                     Finnbjörn A. Hermannsson, Byggiðn SSÍ                              Valmundur Valmundarson, Sjómannafélagið Jötun Bein aðild                 Georg Páll Skúlason, FBM Bein aðild                 Lilja Sæmundsdóttir, FHS   Sjö ályktanir samþykktar Sjö ályktanir voru samþykktar á þinginu, en ályktanirnar eru afrakstur vinnu með þjóðfundarfyrirkomulagi þar sem allir 300 þingfulltrúarnir lögðu sitt að mörkum. Var almenn ánægja með vinnubrögðin á þinginu enda voru ályktanirnar flestar samþykktar samhljóða. Ályktanirnar sem voru samþykktar á þinginu má sjá hér.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag