7. þing Starfsgreinasambands Íslands

7. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett á Hótel Reykjavík Natura í dag, 24. október, og mun standa yfir í tvo daga. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 140 fulltrúar frá 19 aðildarfélögum sambandsins.

Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en í takt við nýja tíma þá verður þingið rafrænt, þ.e.a.s. engum pappír verður dreift heldur munu gögn þingsins verða aðgengileg á sérstökum þingvef. Þá munu kosningar þingsins sömuleiðis fara fram með rafrænum hætti.

Fimmtudagur 24. október
Kl. 10:00 Setning og ávörp gesta
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Kl. 10:45 Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, kosning nefndanefndar
Kl. 11:00 Yfirlit yfir þróun og horfur í kjaramálum - Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ
Kl. 11:30 Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS og ársreikningar sambandsins 2017 og 2018
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:00 Staðan á Norðurlöndum og í Evrópu - Kristján Bragason, framkvæmdastjóri NU-HRCT
Kl. 13:30 Kynning á ályktunum og starfs- og fjárhagsáætlun
Kl. 14:30 Heilbrigði fyrir alla - ávarp Landlæknis
Almennar umræður
Kl. 15:30 Kaffihlé
Kl. 16:00 Nefndanefnd kynnir niðurstöður sínar
Nefndastörf
Kl. 18:00 Þingi frestað

Föstudagur 25. október
Kl. 09:00 Erindi frá Landssambandi eldri borgara - Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB
Kl. 09:30 Umfjöllun fjölmiðla - Grétar Theodórsson, almannatengill
Kl. 10:00 Kaffihlé
Kl. 10:10 Afgreiðsla ályktana frá nefndum
Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar
Ákvörðun um skatthlutfall
Kl. 12:30 Matarhlé
Kl. 13:30 Afgreiðslu mála fram haldið
Kl. 15:15 Kaffihlé
Kl. 15:30 Kosning formanns SGS
Kosning varaformanns SGS
Kosning 5 aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning 5 varamanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning endurskoðenda og félagslegar skoðunarmanna reikninga
Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd)
Kl. 17:00 Þingslit

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag