Áhrif #metoo á vinnumarkaðinn

ASÍ-UNG efna til pallborðsumræðu um áhrif #metoo byltingarinnar innan vinnumarkaðarins og aðgerðir stéttarfélaga í þeim málum, þriðjudaginn 6. febrúar kl.20.00 í Stúdentakjallaranum.  #metoo byltingin hefur verið mikið í umræðunni undanfarið bæði hér á landi og um allan heim. ASÍ-UNG langar að fá ólík sjónarmið að borðinu og bjóða upp á vettvang fyrir spurningar frá gestum úr ýmsum áttum. Í pallborði verða: María Rut Kristinsdóttir, fv. formaður samráðshóps ráðherra um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins og fv. talskona druslugöngunnar Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR Maríanna Traustadóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum frá ASÍ Eiríkur Þór Theódórsson, varaformaður ASÍ-UNG. Fundarstjóri er Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ. Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/169348297047775 ASÍ-UNG eru samtök ungs launafólks innan Alþýðusambands Íslands. Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/asi.unglidar/
  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins