Ályktun formannafundar Starfsgreinasambands Íslands varðandi vaxtamál

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á formannafundi SGS föstudaginn 27. febrúar 2015: Formannafundur SGS tekur undir gagnrýni um mikinn og ólíðandi vaxtamun viðskiptabankanna á Íslandi. Það liggur fyrir að mörg heimili og fyrirtæki hérlendis berjast í bökkum vegna þeirra okurvaxta sem þeim standa til boða. Það liggur líka fyrir að sá vaxtamunur sem hér ríkir þekkist varla í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Þessi mikli vaxtamunur og okurvextir leggjast þungt á skuldsetta alþýðu þessa lands. Bankakerfið á Íslandi olli íslensku samfélagi gríðarlegum skaða og það er algerlega ótækt  að bönkunum, sem yfirtóku lánasöfn almennings og fyrirtækja með miklum afslætti eftir hrun, skuli í skjóli fákeppninnar leyfast að níðast áfram á almenningi með okurvöxtum og gjaldskrárhækkunum. Fundurinn fagnar því að forsætisráðherra skuli standa með launafólki í þessu mikla hagsmunamáli  sem vaxtakjör fjármálakerfisins er, ásamt því að taka undir kröfur SGS vegna komandi kjarasamninga,  enda eru hér um brýnustu hagsmunamál alþýðunnar að ræða. Fundurinn skorar á ríkisstjórnina, Alþingi og fjármálakerfið í heild sinni að taka höndum saman um að skapa hér eðlilegt og sanngjarnt lánaumhverfi þar sem vextir og önnur kjör fjármálakerfisins verði eins og í siðmenntuðum löndum.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag