Ályktun um stjórnarmenn lífeyrissjóða

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands tekur heilshugar undir áhyggjur aðildarfélaga sambandsins sem hafa með bréfum til Fjármálaeftirlitsins gert alvarlegar athugasemdir varðandi mat á hæfi almennra sjóðfélaga til að gegna stjórnarsetu í stjórnum lífeyrissjóða. Svo virðist sem unnið sé að því að útiloka þá frá stjórnarsetu í lífeyrissjóðum. Það er, þrátt fyrir að þeir hafi verið kjörnir til að gegna þessum störfum í þágu sjóðfélaga.

Framkvæmdastjórnin  skorar á ASÍ að hefja þegar í stað viðræður við Fjármálaeftirlitið um aðgengi almennra sjóðfélaga að stjórnun lífeyrissjóða.

Samþykkt á fundi 23. febrúar 2022.

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag