ASÍ og BSRB krefjast breytinga á fæðingarorlofskerfinu

ASÍ og BSRB hafa tekið höndum saman um að krefja stjórnvöld um breytingar á fæðingarorlofskerfinu og lagt af stað í átak á samfélagsmiðlum sem byggir á viðtölum við foreldra ungra barna sem þekkja af eigin raun annmarka kerfisins. Til að sýna mikilvægi þess að búa við gott fæðingarorlofskerfi er fólk hvatt til að segja sína sögu í stuttu máli á samfélagsmiðlum og merkja með myllumerkinu #betrafaedingarorlof. Markmið fæðingarorlofslaga er að börnum sé tryggð samvera við báða foreldra og að konum og körlum sé kleift að samræma fjölskyldu og atvinnulíf. Rannsóknir sýna að núverandi kerfi tryggir ekki að þetta markmið nái fram að ganga. Til dæmis hefur þátttaka feðra minnkað um 40% frá því fyrir hrun og fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki. Þá hefur hámarksupphæð lækkað verulega á undanförnum árum, á meðan verðlag á húsnæði og nauðsynjavörum hefur hækkað. Staða þeirra foreldra sem fara í fæðingarorlof er allt annað en öfundsverð. Það er forgangsmál að endurskoðun eigi sér stað og horft verði til framtíðar. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um nauðsyn endurskoðunar og að breytinga sé þörf hefur ekki verið brugðist við. Kröfur ASÍ og BSRB eru: • Greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi verði óskertar upp að 300.000 kr. • Hámarksgreiðslur verði 600.000 kr. • Fæðingarorlof verði 12 mánuðir. Átt þú sögu til að deila? Hvernig er þín reynsla? #betrafaedingarorlof Fylgstu með umræðunni á Facebook-síðu átaksins, Betra fæðingarorlof.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag