Atkvæðagreiðsla hafin um nýjan kjarasamning

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins hófst á slaginu kl. 12:00 í dag og stendur til hádegis mánudaginn 19. desember. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar eftir hádegi sama dag.

Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12:00 mánudaginn 19. desember en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vel og nýta sinn atkvæðisrétt!

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og innihald samningsins má nálgast hér.

  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag