Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við sveitarfélögin

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga hefst kl. 08:00 þann 1. desember og stendur hún til miðnættis 8. desember. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar daginn eftir. Atkvæðagreiðslan verður með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við sveitarfélögin á kjörskrá. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofum síns félags. Til að greiða atkvæði fara félagsmenn inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins (www.sgs.is) og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorð sem hann fær sent í pósti. Allir kosningabærir félagsmenn fá sendan kynningarbækling í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna, en bæklingurinn inniheldur m.a. lykilorð viðkomandi. Bæklingurinn verður sendur út mánudaginn 30. nóvember og ætti að berast fólki daginn eftir.   [caption id="attachment_33838" align="aligncenter" width="300"]Pökkun á gögnum vegna atkvæðagreiðslu - 27.11 (5) Fulltrúar aðildarfélaga SGS hittust í höfuðstöðvum sambandins í dag til að ganga frá kjörgögnum.[/caption]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag