Atvinnuleysi mældist 3,8% í október

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,8 prósentustig og hlutfall starfandi fólks stóð nánast í stað. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman um 1,2 prósentustig frá því í október 2014, úr 5% í 3,8%. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins