Atvinnuleysi var 2,9% í ágúst

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í ágúst 2016, sem jafngildir 85,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.200 starfandi og 6.000 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Samanburður mælinga fyrir ágúst 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,6 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.700 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,2 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.200 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,8 prósentustig. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag