Atvinnuleysisbætur: Áríðandi tilkynning!

Áríðandi tilkynning til þeirra sem hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur vegna rekstrarstöðvunar í sjómannaverkfalli! Sjómannaverkfallinu er nú lokið góðu heilli. Vinnumálastofnun vill minna starfsfólk fiskvinnslustöðva sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur vegna rekstrarstöðvunar í sjómannverkfallin á að afskrá sig af atvinnuleysisbótum um leið og vinna hefst. Afskráning er afar mikilvæg því ef það gleymist þá kunna greiðslur bóta til einstaklinga að halda áfram og þá getur komið til skuldamyndunar hjá stofnuninni vegna ofgreiddra bóta með óþarfa eftirmálum. Hægt er að afskrá sig með tilkynningu á ,,Mínum síðum“, senda tölvupóst á ,,postur@vinnumalastofnun.is“, hringja í síma  515-4800 eða koma á næstu þjónustuskrifstofu stofnunarinnar.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)