Atvinnuþátttaka 82,4% á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt nýjustu Hagtíðundum Hagstofu Íslands um vinnumarkaðinn voru að jafnaði 190.400 manns á aldrinum 16–74 ára á íslenskum vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi 2014. Þetta þýðir um 1% fjölgun frá sama tíma ári áður og 82,4% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 40.800 og er það fjölgun um 3,8%. Atvinnuþátttaka kvenna var 79,4% og karla 85,3%. Þess má geta að á þriðja ársfjórðungi í fyrra voru alls 188.500 á vinnumarkaði eða 82,7% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 39.300. Atvinnuþátttaka kvenna var þá 79,8% og karla 85,7%. Atvinnuleysi ekki mælst lægra síðan 2008 Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,5% hjá konum og 3,5% hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2014 við sama ársfjórðung 2013 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 600 og hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í ársfjórðungum síðan á fjórða ársfjórðungi 2008, en þá mældist atvinnuleysi einnig 4%. Samantekt Hagstofunnar í heild sinni má nálgast hér. Heimild: Hagstofa Íslands
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag