Ávarp Björns Snæbjörnssonar á framhaldsþingi SGS

Í ávarpi sínu við setningu framhaldsþings Starfsgreinasambandsins í morgun gerði Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, góðan róm að störfum starfshóps sem hefur haft það hlutverk undanfarna mánuði að endurskoða hlutverk, stjórnkerfi, rekstur og lög Starfsgreinasambandsins. Kvaðst Björn binda vonir við, að yrðu tillögur hópsins samþykktar, yrði sambandið fyrir vikið enn sterkari málsvari sinna félaga innan Verkalýðshreyfingarinnar en áður. Ávarp Björns fer hér á eftir. Nú erum við komin hér saman til að ákveða framtíð Starfsgreinasambands Íslands. Á sambandsþingi Starfsgreinasambandsins (SGS) þann 13. október 2011 var samþykkt tillaga um sérstakan sjö manna starfshóp, sem var falið að endurskoða hlutverk, starfsemi, stjórnkerfi, rekstur og lög sambandsins. Í starfshópinn voru skipuð, Aðalsteinn Á Baldursson (Framsýn), Björn Snæbjörnsson (Eining-Iðja), Halldóra S. Sveinsdóttir (Báran), Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (Afl), Kolbeinn Gunnarsson(Hlíf), Kristján Gunnarsson (VSFK) og Sigurður Bessason (Efling).  Að auki störfuðu Kristján Bragason framkvæmdastjóri SGS og Magnús Norðdahl lögmaður ASÍ náið með hópnum.   Á fyrsta fundi starfshópsins var Sigurður Bessason valinn formaður hópsins og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir varaformaður. Starfshópurinn hefur fundað sjö sinnum, þar af var einn sérstakur vinnufundur, einnig hafa átt sér stað fjölmargir óformlegir fundir, samtöl og tölvusamskipti á milli fulltrúa. Vinna starfshópsins var mjög góð og voru hreinskiptar umræður um skipulag sambandsins. Það er ljóst að skiptar skoðanir voru um ákveðna þætti er snúa að skipulagi, stjórnkerfi og starfsemi SGS, en það kom hins vegar á óvart hversu samstíga menn voru. Það var augljós blæbrigðamunur á skoðunum þeirra sem komu að þessari vinnu, en endalegar tillögur eru niðurstaða hópsins.   Mikill hluti af vinnu starfshópsins fór í að endurskrifa lög Starfsgreinasambandsins, og liggja drög að nýjum lögum fyrir þessu framhaldsþingi. Að viðbættum breytingum á lögum SGS leggur starfshópurinn fram fjórar nýjar reglugerðir sem snúa að framkvæmd á lögunum og starfsemi sambandsins. Jafnframt leggur starfshópurinn til að ný framkvæmdastjórn, í samvinnu við formenn aðildarfélaga, muni meta hvort þurfi að setja fleiri reglugerðir er snúa að starfsemi sambandsins.   Talsverð umræða var um erlend samskipti og hefur verið tekið saman mjög ítarlegt yfirlit  um þau. Mikil umræða var um hvernig megi draga úr kostnaði við þessi samskipti en um leið auka gildi þeirra fyrir okkur. Ráðist hefur verið í bæði varanlegar og tímabundnar aðgerðir til m.a. að lækka kostnað við erlend samskipti, einnig eru nýjar verklagsreglur varðandi  erlend samskipti og stjórnarsetu.    Samhliða vinnu starfshópsins hefur framkvæmdastjóri ráðist í margvíslegar sparnaðaraðgerðir í rekstri SGS t.d. með því að lækka kostnað við húsnæði.  Á framhaldsþinginu verður lögð fram  starfs- og fjárhagsáætlun fyrir 2012 og 2013 sem gerir ráð fyrir umtalsverðri  lækkun á rekstrarkostnaði SGS  og þar af leiðandi  minni skattlagningu.   Tillögur starfshópsins voru kynntar ítarlega á fundum með aðildarfélögum víðsvegar um land í mars og apríl sl. Á fundunum og í framhaldi af þeim gafst aðildarfélögunum tækifæri á að koma með athugasemdir við tillögurnar. Almennt var gerður mjög góður rómur að þeim og fáar athugasemdir komu fram. Í framhaldinu fundaði starfshópurinn um ábendingarnar og gerði breytingar í kjölfarið. Það er þó ljóst að ekki var tekið tillit til allra athugasemda frá aðildarfélögum, enda erfitt að ná samstöðu um alla þætti. Að lokum leggur starfshópur starfsháttanefndar til að sérstök skoðun verði gerð fyrir þing SGS árið 2013, þar sem lagt verði mat á hvernig til hafi tekist með skipulagsbreytingar og hvort nauðsynlegt sé að ráðast í frekari breytingar fyrir næsta þing. Nú er það ykkar ágætu félagar að vinna úr þessum tillögum og ákveða hvort það sem gert hefur verið sé eitthvað sem menn eru tilbúnir að samþykkja. En ég tel að ef þetta gengur eftir þá verðum við með sterkara Starfsgreinasamband, það verður lýðræðislegra með auknu vægi formannafunda sem ég tel vera lykilinn að þeirri sátt sem hefur náðst. Og ekki síst ódýrara fyrir aðildarfélögin. Ég vona að eftir þetta verði Starfsgreinasamband Íslands enn öflugri málsvari sinna félaga innan Verkalýðshreyfingarinnar heldur en hann var.   Horfum til framtíðar, kæru félagar, með öflugra Starfgreinasamband. En nú taka Ásgerður og félagar við stjórninni.   Takk fyrir  
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag