Desemberuppbót og fæðingarorlof

Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli á að í flestum kjarasamningum er skýrt kveðið á um það að eftir eins árs starf teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofs- og desemberuppbóta. Nokkuð hefur borið á því að starfsfólk í fæðingarorlofi hafi ekki fengið desemberuppbót greidda og því vill SGS árétta framangreint. Desemberuppbót skal greiða ekki síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag