Drífa Snædal kjörin nýr forseti ASÍ

Talning í kjöri til forseta Alþýðusambands Íslands er lokið og féllu atkvæði þannig að Drífa Snædal hlaut 192 atkvæði eða 65,8% en Sverrir Mar Albertsson fékk 100 atkvæði eða 34,2%. Atkvæði greiddu 293 og var eitt atkvæði ógilt. Drífa Snædal er 45 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands auk þess að vera með meistarapróf í vinnumarkaðsfræðum og vinnurétti frá Háskólanum í Lundi. Drífa hefur starfað sem framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands frá árinu 2012 en áður var hún framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samtaka um Kvennaathvarf. Drífa Snædal er fyrsta konan sem er kjörin í embætti forseta ASÍ í 102 ára sögu Alþýðusambands Íslands.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag