Í aðdraganda þings ASÍ var jafnréttisstefna og aðgerðaáætlun sambandsins endurskoðuð og samþykkt á miðstjórnarfundi. Í stefnunni er lögð áhersla á innleiðingu jafnlaunastaðalsins til að vinna gegn launamuni kynjanna og virkja bæði kyn til þátttöku á öllum sviðum samfélagsins og innan vébanda hreyfingarinnar. Stefnan og aðgerðaáætlunin 2012-2016 er svohljóðandi:
Stefna
Jafn réttur og jöfn tækifæri kvenna og karla til starfa, starfsþróunar og launa eru meðal þeirra grundvallarþátta mannréttinda sem verkalýðshreyfingin byggir á og skal standa vörð um. Sterk verkalýðshreyfing þrýstir á aukið jafnrétti en um leið þarfnast baráttan víðtæks stuðnings launafólks. Alþýðusamband Íslands á að koma með virkum hætti að stefnumótun og aðgerðum í baráttunni fyrir jafnrétti kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins. Til þess að fylgja því eftir skal ASÍ: 1. Taka virkan þátt í þróun lagasetninga er varða jafnrétti kvenna og karla og innleiðingu þeirra sem og jafnlaunastaðals á vinnumarkaði. 2. Vinna að framgangi jafnréttis kynjanna með virkri þátttöku á öllum sviðum samfélagsins sem og innan sinna vébanda. 3. Vinna markvisst með aðildarsamtökum sínum að því að efla vitund og skilning á mikilvægi jafnréttis kvenna og karla.Aðgerðaáætlun
Til þess að fylgja eftir þessum markmiðum skal ASÍ í samvinnu við aðildarfélög sín vinna að eftirtöldum verkefnum.- Liður 1: Vinna gegn launamun kynjanna með því að; -stuðla að innleiðingu jafnlaunastaðals á vinnumarkaði -taka virkan þátt í að afla stöðugt nýrra upplýsinga um laun kvenna og karla, vinna úr þeim og kynna -taka þátt í undirbúningi gagnasöfnunar um launamun kynjanna með tillögum og athugasemdum til þeirra sem gera launakannanir -taka virkan þátt í endurskoðun jafnréttislaga Vinna tölulegar upplýsingar um stöðu jafnréttismála innan sambandsins með því að; -vinna áfram með kynjabókhald, efla og auka við þær upplýsingar sem þar eru greindar og lagðar fram.
- Liður 2: Jafna stöðu kvenna og karla í stjórnum og áhrifastöðum á vinnumarkaði og innan verkalýðshreyfingarinnar með því að; -taka tillit til kynjasjónarmiða við val í nefndir og ráð þar sem hreyfingin skipar fulltrúa í -byggja upp tengslanet kvenna sem eru talsmenn verkalýðshreyfingarinnar; kjörnir fulltrúar, starfsmenn, sérfræðingar, trúnaðarmenn og/eða virkir félagsmenn -stuðla að breytingum á hefðum hvað varðar tímasetningar funda og annarra félagslegra atburða þannig að markmiðum samþættingar atvinnu- og fjölskyldulífs verði náð Stuðla að því að öll aðildarsamtök innan ASÍ setji sér og/eða fylgi eftir jafnréttisáætlun í samræmi við jafnréttislög með því að; -skipuleggja og fylgja eftir fræðslu um gerð slíkra áætlana þar sem fram koma m.a. ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundna eða kynferðislega áreitni í öllu starfi verkalýðshreyfingarinnar Að samþætta kynjasjónarmið við kröfugerð og í kjarasamningaferli
- Liður 3: Efla jafnréttisfræðslu hreyfingarinnar með því að; -stuðla að fræðslu um jafnrétti kvenna og karla á vegum hreyfingarinnar -kynna nýjar áherslur í samþættingu jafnréttis- og mannréttindasjónarmiða -fræða um ný ákvæði í lögum, reglugerðum og samþykktum sem geta haft áhrif á þróun og aðgerðir í jafnréttismálum