Er skítur í þínum hornum?

Ef þú greiðir manneskju 2.500 krónur á tímann fyrir að þrífa heima hjá þér ert þú sennilega að greiða undir lágmarkslaunum í landinu. Ef þú tekur 2.500 krónur á tímann fyrir að þrífa heima hjá fólki ert þú ekki að fá greitt sanngjarnt fyrir þína vinnu. Ef þú greiðir eða færð greitt  svart ert þú að brjóta lög. Heimilisþrif eru algeng og er nóg að fara inn á vefsíðuna bland.is til að sjá líflegan markað þar sem vinna gengur kaupum og sölum fyrir hreint ótrúlega lágar upphæðir. Oft er um að ræða einyrkja og að mér læðist sá grunur að ekki sé allt upp gefið til skatts. Þar með er ekki einungis verið að hafa af starfsfólki réttindi heldur getur verkkaupi verið skaðabótaábyrgur ef vinnuslys verður. Svört vinna er ekki í lagi enda er með henni verið að svindla á samfélaginu og allir eru verr settir ef eitthvað bregður út af. Verktakavinna er sennilega algengasta formið á heimilisþrifum þar sem verktaki gefur út reikning fyrir vinnunni sinni og verkkaupi greiðir fast verð fyrir þrifin eða verð á hverja klukkustund. Það er ekkert að því að kaupa verktöku eða vera verktaki, ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Skilyrðin eru meðal annars þau að verktakinn stýri verkinu sjálfur, geti meðal annars sent einhvern annan fyrir sig og hefur stjórnunarvald yfir verkinu. Verktakinn skaffar sjálfur efni og áhöld og gerir verksamning um vinnuna og að um ákveðið og tímabundið verkefni er að ræða. Ríkisskattstjóri hefur gefið út góðar leiðbeiningar þar sem skilyrðin eru tíunduð og hægt er að meta hvort viðkomandi er verktaki eða það sem er kallað gerviverktaki, þ.e.a.s. verktaki sem á í raun að vera launamanneskja á launaskrá. En að krónum og aurum: Launafólk ávinnur sér réttindi á vinnumarkaði með því að skila sköttum og gjöldum og sumar af þessum greiðslum á atvinnurekandi að standa skil á. Segjum sem svo að manneskja þrífi í verktöku fyrir 2.500 krónur á tímann. Hvað verður eftir sem laun þegar búið er að draga frá það sem atvinnurekandi á að greiða í launateng gjöld? Úteikningarnir hafa verið uppfærðir eftir athugasemdir en rétt er að geta þess að þetta er tilbúið dæmi. Sumir greiða 2.500 kr. fyrir utan VSK og þá hækka greiðslur vegna frádráttar og minna verður eftir í veskinu, allt niður í 1.200 krónur. Hér er þó sett upp dæmið eins og 2.500 krónur séu heildargreiðslurnar og greitt er 1.992 krónur fyrir skatt.
greitt á tímann 2.500 kr.  Fyrir VSK 1.992, launastofn 1.851 kr., gjaldastofn 1714,4 kr.
virðisaukaskattur 25,50% 508 kr.
tryggingagjald 7,59% 140,53 kr.
mótframlag í lífeyrissjóð 8% 137,15 kr.
sjúkrasjóður 1% 17,14 kr.
starfsmenntasjóður 0,30% 5,14 kr.
orlofssjóður 0,25% 4,29 kr.
starfsendurhæfingasjóður 0,13% 2,23 kr.
orlof 10,17% 158,26 kr.
Samtals framlag launagreiðanda 972,7 kr.
laun verktaka fyrir skatt 1.645,8 kr.
Nær allar þessar greiðslur gera það að verkum að launafólk ávinnur sér meiri réttindi eftir því sem greitt er hærra í viðkomandi sjóði. Þarna er ekki búið að taka tillit til desemberuppbótar (73.600 krónur á ári) eða orlofsuppbótar (39.500 krónur á ári) né greiðslna vegna helgidaga þegar launafólk er í fríi en heldur fullum launum. Það er heldur ekki búið að taka tillit til kaffi- og matartíma sem greiddir eru af atvinnurekanda. Ferðakostnaður á milli staða er heldur ekki talinn inn í þessa útreikninga en það getur verið töluverður tími og kostnaður sem fylgir ferðum innan hefðbundins dagvinnutíma. Að lokum þá ber atvinnurekendum að tryggja launafólk fyrir dauða og örorku. Að þessu undanskildu eru eftir í vasa verktakans 1.645,8 krónur og af þeirri upphæð á hann eftir að greiða skatta, félagsgjald í stéttarfélag (1%) og lífeyrissjóðsiðgjald launamanns(4%). Þeir kjarasamningar sem komast næst því að eiga við þrif inni á heimilum eru samningar Starfsgreinasambandsins við Bændasamtök Íslands fyrir fólk sem starfar á bændabýlum. Lágmarkstímakaup þar í dagvinnu er 1.249,06 krónur en launin hækka með hverju árinu sem unnið er og að sjálfsögðu er greitt meira fyrir yfirvinnu og vinnu á stórhátíðum. Fólk sem hefur lokið einhverju námi raðast svo hærra í launatöfluna. Ef tekið er tillit til alls ofangreinds er ljóst að ef greiddar eru 2.500 krónur á tímann fyrir þrif í verktakavinnu er sennilega verið að greiða undir lágmarkslaunum í landinu og það er ólöglegt. Því er von að spurt sé: Ert þú að fá greitt fyrir þína vinnu? Er samviskan þín jafn hrein og heimilið eftir aðkeypt þrif?   Drífa Snædal Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)