Erindrekstur um allt land

Forysta Starfsgreinasambandsins  hélt áfram erindrekstri nú eftir áramótin og á síðustu tveimur dögum hafa Björn Snæbjörnsson formaður SGS, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir varaformaður SGS og Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS heimsótt fjögur aðildarfélög. Þetta eru félögin Hlíf í Hafnarfirði, Drífandi í Vestmannaeyjum, Verkalýðsfélag Vestfjarða á Ísafirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur. Auk hefðbundinna umræða um stöðu Starfsgreinasambandsins og framtíð hefur fundarmönnum orðið tíðrætt um forsendur kjarasamninga og endurskoðun í febrúar og að sjálfsögðu hefur gefist góður tími til að fjalla um stöðu landverkafólks í sjómannaverkfallinu. Nú hefur þríeykið heimsótt 17 aðildarfélög af 19 og er ætlunin að ljúka yfirferðinni í byrjun febrúar. Eftir það verður unnið úr öllum þeim fjölmörgu ábendingum og hugmyndum sem hafa safnast í sarpinn. Í Vestmannaeyjum var auk hefðbundins stjórnarfundar boðað til almenns félagsfundar vegna stöðu starfsfólks í fiskvinnslu og er þungt í fólki hljóðið en samstaða með sjómönnum áberandi.   [gallery ids="78316,78317,78318,78319,78320,78321,78322,78323,78324,78325,78330,78334,78335,78336,78338,78339,78340,78333,78332,78331"]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag