Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí

Fyrsti maí verður haldinn hátíðlegur á yfir 30 stöðum á landinu næstkomandi miðvikudag. Víða eru farnar kröfugöngur, annars staðar eru hátíðar- og baráttufundir. Hér má sjá dagskrána um allt land. Reykjavík Dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna í Reykjavík 2019 verður sem hér segir: Safnast saman á Hlemmi klukkan 13:00. Gangan hefst kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika í göngunni. Útifundur á Ingólfstorgi settur klukkan 14:10. Dagskrá: GDRN Ræða: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar GDRN Ræða: Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB Bubbi Morthens Samsöngur - Maístjarnan og Internasjónalinn Fundarstjóri: Þórarinn Eyfjörð Öll dagskráin verður táknmálstúlkuð og sungið verður á táknmáli í tónlistaratriðum. VR býður upp á upphitun fyrir kröfugönguna á Klambratúni kl. 11:30, m.a. fjölskylduhlaup og skemmtun. Boðið verður til kaffisamsætis í anddyri Laugardalshallarinnar eftir útifundinn á Ingólfstorgi. Efling – stéttarfélag býður félagsmönnum sínum upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda að hátíðarhöldunum á Ingólfstorgi loknum. Byggiðn, Félag iðn- og tæknigreina (FIT), MATVÍS, Grafía og Rafiðnaðarsamband Íslands, verða með opið hús í nýju sameiginlegu húsnæði félaganna að Stórhöfða 31 að göngu lokinni. Boðið verður upp á kaffi að útifundi loknum í Gullhömrum Grafarholti, frá kl. 15:00 - 17:00. Hafnarfjörður Samstöðutónleikar í Bæjarbíói í boði Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar) Tónleikarnir hefjast kl. 15:00. Húsið opnar 14:30 Fram koma Mugison, JóiP og Króli og GDRN. Stutt ávörp flytja Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar og Karl Þórsson, formaður STH Akranes Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga Hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40 að göngu lokinni Ræðumaður dagsins: Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélag Akraness Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög Kaffiveitingar Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00 Borgarnes Hátíðar- og baráttufundur hefst í Hjálmakletti kl. 11.00 Ávarp: Eiríkur Þór Theodórsson, formaður ASÍ-UNG Ræða dagsins: Sigursteinn Sigurðsson arkitekt Tónlistaratriði: Soffía Björg Óðinsdóttir Ronja Ræningjadóttir kíkir í heimsókn Gleðigjafar kór eldri borgara í Borgarnesi syngur og leiðir hópsöng, Internasjónalinn Súpa og brauð að fundi loknum Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa Stykkishólmur Hótel Stykkishólmi kl.13:30 Kynnir: Berglind Eva Ólafsdóttir, SDS Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson Tónlistaatriði úr tónlistarskóla Stykkishólms Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson Kaffiveitingar Grundarfjörður Samkomuhúsinu kl.14:30 Kynnir:  Garðar Svansson stjórnarmaður Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson Tónlistaatriði frá tónlistaskóla Grundarfjarðar Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson Kaffiveitingar að hætti Gleym-mér-ei Snæfellsbær Félagsheimilinu  Klifi kl.15:30 Ræðumaður: Vignir Smári Maríasson Tónlistaskóli Snæfellsbæjar Þórunn Lárusdóttir og Karl Olgeirsson Kaffiveitingar að hætti eldri borgara Sýning eldriborgara Bíósýning Ísafjörður Kröfuganga frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar verður í fararbroddi undir stjórn Madis Maekalle Dagskrá í Edinborgarhúsinu: Kynnir: Finnur Magnússon Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar leikur Ræðumaður dagsins: Sigurður Pétursson, sagnfræðingur Söngatriði: Kristín Haraldsdóttir Pistill dagsins: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, formaður FOS-Vest Kómedíuleikhúsið leikur atriði úr Karíus og Baktus Kaffiveitingar í Guðmundarbúð Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00 Suðureyri Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14.00 1.maí ávarp og konur heiðraðar Kaffiveitingar verða í Félagsheimili Súgfirðinga Söngur og tónlistarflutningur Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar Blönduós Dagskráin hefst kl. 15:00 Ræðumaður dagsins: Eiríkur Þór Theodórsson, formaður ASÍ-UNG Boðið verður upp á frábæra tónlist og söng Afþreying fyrir börnin Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi Skagafjörður Hátíðarsamkoma stéttarfélaganna verður haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð Húsið opnar kl. 14:30 og formleg dagskrá hefst kl. 15:00 með hátíðarræðu dagsins Ræðumaður: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu Geimundur spilar á nikkuna og einnig munu nemendur úr Árskóla og ungliðar í Karlakórnum Heimi flytja lög fyrir samkomugesti Kaffiveitingar Akureyri Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið 13:30 Kröfuganga kl. 14 (Alþýðuhús–Göngugata–Ráðhústorg–Hof) Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna - Jóhann Rúnar Sigurðsson, FMA Skemmtiatriði: Örn Smári Jónsson syngur frumsamin lög Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, flytur aðalræðu dagsins Skemmtiatriði: Svenni Þór og Stefánía Svavars Hátíðardagskrá lokið með sameiginlegum söng á Maístjörnunni Kaffi í Hofi Fjallabyggð Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00 Flutt verður ávarp stéttarfélaganna Kaffiveitingar Húsavík Hátíðardagskrá í íþróttahöllinni kl. 14:00. Reynir Gunnarsson syngur Maístjörnuna Ávarp: Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar stéttarfélags Hátíðarræða: Ásdís Skúladóttir leikstjóri og einn stofnenda Gráa hersins Tónlist: Söngfélagið Sálubót ásamt hljómsveit taka nokkur lög Söngur og grín: Eyþór Ingi Gunnlaugsson eftirherma og söngvari Grín: Guðni Ágústsson í sínu besta formi Söngur: Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir syngja þekkt dægurlög Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffi og meðlæti í boði stéttarfélaganna. Vopnafjörður Hátíðardagskrá  verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl.  14:00 Kaffiveitingar Tónlistaratriði Ræðumaður: Kristján Eggert Guðjónsson Borgarfjörður eystri Hátíðardagskrá verður í Álfheimum kl. 12.00 Súpa og meðlæti Ræðumaður: Reynir Arnórsson Seyðisfjörður Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00 Kaffiveitingar Skemmtiatriði Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson Egilsstaðir Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði  kl. 10.30 Morgunverður Tónlistaratriði Ræðumaður:  Sverrir Kristján Einarsson Reyðarfjörður Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:30 Kaffiveitingar og tónlistaratriði Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Ræðumaður: Elías Jónsson Eskifjörður Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00 Kaffiveitingar og tónlistaratriði Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Ræðumaður: Elías Jónsson Neskaupstaður Hátíðardagskrá á Hildibrand kl.14:00 Kaffiveitingar Tónlistaratriði – félags harmónikkuunnenda Ræðumaður: Bergsteinn Brynjólfsson Fáskrúðsfjörður Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Skrúði kl. 15:00 Kaffiveitingar Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir Stöðvarfjörður Hátíðardagskrá í Saxa guesthouse kl. 15:00 Kaffiveitingar Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar Ræðumaður: Birkir Snær Guðjónsson Breiðdalsvík Hátíðardagskrá verður  á Hótel Bláfelli  kl. 14:00 Kaffiveitingar Tónlistaratriði Ræðumaður: Birkir Snær Guðjónsson Djúpavogur Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð  kl. 11:00 Morgunverður Tónlistaratriði Myndlistasýning grunnskólans Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson Hornafjörður Hátíðardagskrá á Z Bistro kl. 14:00 Kaffiveitingar Lúðrasveit Hornafjarðar Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson Vestmannaeyjar Kaffisamsæti og dagskrá í Alþýðuhúsinu frá kl. 14 Dagskrá: Baráttufundur og kaffisamsæti í Alþýðuhúsinu Fulltrúi verslunarmanna flytur 1. maí ávarpið Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina Selfoss Kröfuganga við undirleik Lúðrasveitar Selfoss kl. 11.00 frá Austurvegi 56, að Hótel Selfossi þar sem skemmtun fer fram Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum. Ræðumenn dagsins: Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BSRB og Álheiður Österby námsmaður Leikfélag Selfoss sýnir atriði úr leikritinu „Á vit ævintýranna“ Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur syngja nokkur lög Kynnir: Gils Einarsson Teymt undir börnum í Sleipnishöllinni frá kl. 12.30-14.30 Grindavík Hátíðardagskrá verður í Gjánni Austurvegi 5 kl 15:00 Kaffiveitingar, tónlistaratriði og hoppukastali fyrir yngri kynslóðina. Reykjanesbær Hátíðar og baráttufundur  í Stapa - húsið opnar 13.45 Guðmundur Hermannsson syngur og spilar ljúf lög Setning kl. 14:00 - Ólafur Sævar Magnússon FIT Ræða dagsins, Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis Tónlist: Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson Leikfélag Keflavíkur „Allir á trúnó“ Ungmennakórinn Vox Felix Stjórnandi er Arnór B. Vilbergsson Kaffiveitingar verða í lok fundar Börnum boðið í Sambíó Hafnargötu á 1. maí Kynnir: Kristján Gunnar Gunnarsson, VSFK Sandgerði Í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí býður Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis upp á kaffi og meðlæti í miðrými Vörðunnar að Miðnestorgi 3 frá kl. 15–17 Dagskrá: Ávarp Söngsveitin Víkingarnir Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar og félagar ásamt Birtu Rós
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag