Fleiri aðildarfélög gagnrýna stjórnvöld

Starfsgreinasambandið greindi frá því í síðustu viku að nokkur aðildarfélaga sambandsins hefðu sent frá sér harðorðar ályktanir þar sem stefna stjórnvalda og nýtt fjárlagafrumvarp er  gagnrýnt harkalega. Nú hafa fleiri félög innan SGS látið í sér heyra og sent frá sér ályktanir um fjárlagafrumvarpið. Ályktun frá Verkalýðsfélagi Suðurlands Verkalýðsfélag Suðurlands mótmælir harðlega  þeirri aðför að launafólki sem birtist í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar má helst telja. Hækkun virðisaukaskatts á matvæli, skert réttindi atvinnulausra, lækkun framlags ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði Lífeyrissjóða á sama tíma og dælt er peningum inn til opinberu sjóðanna sem þýðir enn meiri ójöfnuð á milli kjara almennra og opinberra Lífeyrissjóða. Þetta leggur auknar  byrðar á lágtekjuhópa  og sýnir að  þeir eru ekki í forgangshópi ríkisstjórnarinnar. Það er ótrúlegt skilningsleysi ríkjandi við gerð þessa fjárlagafrumvarps á kjörum almennings. Með þessu frumvarpi  er ríkisstjórnin að gefa  samstarfi við verkalýðshreyfinguna langt nef. Við þessar aðstæður verður verkalýðshreyfingin að svara þeim skilaboðum  skýrt og búa sig undir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hafa í langan tíma. VLFS áréttar að félög innan ASÍ hafa sýnt mikla ábyrgð við gerð samninga á undanförnum árum.  Það getur ekki verið réttlætanlegt að þau beri hana ein  í þjóðfélagi  sem vill byggja á jöfnuði  og sanngirni fyrir þegna sína.   Ályktun frá Verkalýðs– og sjómannafélag Sandgerðis Verkalýðs– og sjómannafélag Sandgerðis mótmælir harðlega þeirri aðför að íslensku launafólki sem birtist í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar má helst telja: Hækkun virðisaukaskatts á matvæli, skert réttindi atvinnulausra sem er mest á Suðurnesjum og lækkun á framlagi ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði Lífeyrissjóða. Með þessu frumvarpi er ríkisstjórnin að gefa samstarfi við verkalýðshreyfinguna langt nef. Við þessar aðstæður verður verkalýðshreyfingin að svara þeim skilaboðum skýrt og búa sig undir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hafa í langan tíma. Verkalýðs– og sjómannafélag Sandgerðis áréttar að félög innan ASÍ hafa sýnt mikla ábyrgð við gerð samninga á undanförnum árum.  Það getur ekki verið réttlætanlegt að þau ein axli  ábyrgð á stöðuleika í samfélagi  sem vill byggja á jöfnuði og sanngirni fyrir þegna sína.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag