Formannafundur SGS - tveir formenn kvaddir

Síðastliðinn föstudag (19. febrúar) hélt Starfsgreinasambandið formannafund í höfuðstöðvum sambandsins í Reykjavík. Til fundarins voru boðaðir formenn allra aðildarfélaga sambandsins, 19 talsins. Á dagskrá fundarins var m.a. erindi frá Vinnueftirlitinu þar sem Kristinn Tómasson læknir Vinnueftirlitsins fjallaði um ofbeldi, áreiti og einelti og úrræði við þeim og innlegg frá NPA-miðstöðinni þar sem þeir Rúnar Björn Þorkelsson, formaður NPA-miðstöðvarinnar og Hallgrímur Eymundsson, stjórnarmaður, kynntu hugmyndafræði NPA og starfsemi samtakanna fyrir fundarmönnum. Á fundinum var samþykkt ályktun vegna kjaradeilu starfsfólk í Álverinu í Straumsvík, en í henni lýsir SGS yfir þungum áhyggjum af kjaradeilu starfsfólks í álverinu í Straumsvík við óbilgjarna viðsemjendur, en um leið yfir fullum stuðningi við starfsfólk í álverinu og þeirra stéttarfélög í baráttunni. Ályktunina í heild sinni má sjá hér. Þá voru stór sameiginleg verkefni aðildarfélaga SGS svo sem barátta gegn mansali og sjálfboðastörfum rædd og ákveðið hvernig skuli halda áfram störfum á þessum vettvangi. Á fundinum voru tveir fráfarandi formenn aðildarfélaga innan SGS kvaddir þar sem þeir munu senn láta af formennsku í sínum félögum. Formennirnir sem um ræðir eru Már Guðnason, formaður Verkalýðsfélags Suðurlands og Ásgerður Pálsdóttir, formaður Stéttarfélagsins Samstöðu, en bæði hafa þau gegnt formennsku í sínum félögum til fjölda ára. Var þeim færður þakklætisvottur fyrir farsælt og ánægjulegt samstarfs innan Starfsgreinasambandsins í gegnum tíðina. [gallery ids="44039,44040,44041,44036"]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag