Formenn funda í Grindavík

Dagana 2. og 3. júní heldur Starfsgreinasambandið útvíkkaðan formannafund sinn og verður hann að þessu sinni haldinn í húsakynnum Verkalýðsfélagsins í Grindavík, Víkurbraut 46. Til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Fundurinn hefst á hádegisverði formanna og ungliða aðildarfélaga SGS, en í framhaldinu munu fulltrúar ungliða gera grein fyrir fundarstörfum sínum dagana á undan ásamt því að ræða eflingu ungs fólks innan hreyfingarinnar. Fjölmörg önnur mál verða tekin fyrir á fundinum, en dagskrána í heild sinni má sjá hér að neðan. 2. júní 2016 Kl. 12:30              Hádegisverður með ungliðum innan aðildarfélaga SGS. Kl. 13:30              Fulltrúar ungliða gera grein fyrir fundi sínum, árangri og áherslum - Kl. 14:30              Almennar umræður í kjölfarið um eflingu ungs fólks innan hreyfingarinnar. Kl. 14:30              Samstarfssamningur samninganefndar SGS. Kl. 15:00              Ársreikningar SGS fyrir árið 2015 kynntir og farið yfir starfið framundan. Kl. 15:30              Kaffi. Kl. 16:00              Skýrsla um samsetningu félagsmanna innan aðildarfélaga SGS. Kl. 16:30              Vinnustaðaeftirlit - Dröfn Haraldsdóttir kynnir skipulag og markmið vinnustaðaeftirlitsins. Kl. 17:30              Fundi frestað. 3. júní 2016 Kl. 09:00              Vinnuumhverfi, heilsa og atvinnuþátttaka ungs fólks á Norðurlöndunum - Kl. 09:45              Steingerður Ólafsdóttir kynnir nýja Norræna skýrslu. Kl. 09:45              Kaffi. Kl. 10:00              Fræðslusjóðirnir - Kristín Njálsdóttir og Lísbet Einarsdóttir Kl. 11:00              flytja skýrslu um fræðslusjóðina og ný verkefni tengd þeim. Kl. 11:00              Frágangur ályktana og önnur mál. Kl. 12:00              Formannafundi slitið – sameiginlegur hádegisverður. Kl. 13:00              Samninganefnd SGS kemur saman. Kl. 14:00              Samninganefndarfundi slitið.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag