Fræðsludagar á Hellu

Dagana 8. og 9. maí stóð Starfsgreinasambandið fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins. Fólk kom saman á Hotel Stracta á Hellu og var mætingin með besta móti, en alls mættu 27 fróðleiksfúsir fulltrúar frá alls 15 félögum.  Dagskráin var fjölbreytt og sett saman samkvæmt óskum þátttakenda. Meðal dagskrárliða fyrri daginn voru erindi og umræður um uppbyggingu trúnaðarmannakerfa og stuðning við trúnaðarmenn, notkun samfélagsmiðla og samskipti atvinnurekenda og stéttarfélaga í ferðaþjónustunni. Seinni daginn var yfir verkefnin sem eru framundan hjá SGS auk þess sem fulltrúi fræðslusjóðanna fór yfir nýtingu félagsmanna á fræðslusjóðunum og verkferla. Þetta var í fjórða skipti sem SGS stendur fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk stéttarfélaganna og ljóst að þessi viðburður er kominn til að vera, enda hefur ánægja þátttakenda verið mikil í öll skiptin.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)