Fræðsludagur félagsliða

Starfsgreinasamband Íslands boðaði til fræðslufundar fyrir félagsliða af öllu landinu þann 22. nóvember síðastliðinn. Mikil ásókn var á fundinn eins og jafnan er, en þetta er í fjórða sinn sem SGS heldur slíkan viðburð. Að þessu sinni var lögð áhersla á hópastarf, hvernig félagsliðar geti styrkt sig félagslega og faglega auk þess að styrkja stöðu stéttarinnar út á við. Rúmlega 40 félagsliðar tóku þátt í fræðsludeginum og færri komust að en vildu. Það var ofarlega í huga félagsliða að efla samstöðuna, jafnvel með því að sameinast í eitt stéttarfélag, fá löggildingu á stéttinni líkt og aðrar heilbrigðisstéttir eru með, kynna betur hvað félagsliðar gera og auka menntun og fræðslu. Á fræðsludeginum var framhaldsnámið í Borgarholtsskóla kynnt betur, farið var yfir hlutverk félagsliða í breyttri velferðarþjónustu og fjallað um hvernig megi koma í veg fyrir kulnun í starfi.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag