Fréttatilkynning frá formannafundi SGS

Á formannafundi SGS, sem lauk sl. föstudag á Hótel Hallormsstað, var eftirfarandi ályktun samþykkt: Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabankans frá 22. maí síðastliðinn þar sem stýrivextir voru lækkaðir um 0,5% er vonandi upphafið á langvarandi vaxtalækkunferli. Vaxtalækkun var ein af forsendum kjarasamnings sem félög innan Starfsgreinasambandsins ásamt fleiri félögum í verkalýðshreyfingunni undirrituðu nú í apríl. Í vaxtalækkuninni felast mikilvægar kjarabætur til launafólks í landinu. Um leið og það er ítrekað að hér er vonandi bara fyrsta skrefið í vaxtalækkunum þá er það gríðarlega mikilvægt að bankar, fjármálastofnanir og aðrir lækki strax sína vexti og ávinningur skili sér til launafólks sem hefur skapað þessa möguleika.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag