Hækkun menntastyrkja

Stjórnir þriggja fræðslusjóða sem félagsmenn aðildarfélaga SGS greiða til; Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt, hafa samþykkt eftirfarandi hækkanir á einstaklingsstyrkjum úr sjóðunum : Landsmennt Stjórn Landsmenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 70.000 kr. frá og með 1. júlí nk. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 70.000 kr eða mest 75% kostnaðar. Hækkun á geymdum rétti (uppsafnaður réttur) er eftirfarandi: • 2015 verður hægt að taka út kr. 190.000.- fyrir eitt samfellt nám/námskeið. Ferðakostnaður vegna náms getur að hámarki orðið kr. 70.000.- (nær til náms sem hefst eftir 1.júlí 2015) • 2016 verður hægt að taka út kr. 200.000.- og 2017 verði upphæðin orðin 210.000.- Ekki hefur verið gerð breyting á styrkjum til meiraprófs eða til tómstundanámskeiða. Hækkunin nær til þess náms sem hefst eftir 1. júlí 2015. Ríkismennt Stjórn Ríkismenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. frá og með 1. júní 2015. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar. Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.- Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða. Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015. Sveitamennt Stjórn Sveitamenntar hefur samþykkt að hækka hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í 75.000 kr. frá og með 1. júní 2015. Upphæð styrkja er miðuð við greidd iðgjöld síðustu 12 mánaða en hægt er að fá styrk (þá lægri) eftir 6 mánaða aðild. Styrkur getur þó aldrei orðið hærri en 75.000 kr eða mest 75% kostnaðar. Hækkun á geymdum rétti (3ja ára) verður til samræmis við þessa hækkun kr. 225.000.- Engin breyting er á styrkjum til meiraprófs eða styrkum til tómstundanámskeiða. Hækkunin nær til náms/námskeiða sem hefjast eftir 1. júní 2015.  Starfsgreinasambandið hvetur félagsmenn aðildarfélaga að nýta sér námsstyrkina til að efla sig á vinnumarkaði og auka lífsgæðin!
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag