Kjarakröfur SGS birtar atvinnurekendum

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) afhenti Samtökum atvinnulífsins í dag kröfugerð sína vegna komandi kjarasamninga. Kröfurnar mótuðust á fundum í verkalýðsfélögum og á vinnustöðum um land allt og með hliðsjón af niðurstöðu viðhorfskannana. Þær urðu þannig til í víðtæku, lýðræðislegu ferli í verkalýðshreyfingunni þar sem öllum félagsmönnum gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif. Meginkröfur Starfsgreinasambandsins eru þær að
  • miða krónutöluhækkanir á laun við að lægsti taxti verði 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára og sérstaklega verði horft til gjaldeyrisskapandi atvinnugreina við launahækkanir.
  • endurskoða launatöflur þannig að starfsreynsla og menntun séu metin til hærri launa.
  • desember- og orlofsuppbætur hækki.
  • vaktaálag verði endurskoðað og samræmt kjarasamningum á opinberum vinnumarkaði.
  • lágmarksbónus verði tryggður í fiskvinnslu.
  • skilgreind verði ný starfsheiti í launatöflu.
Gerðir hafa verið kjarasamningar við einstaka starfsstéttir undanfarnar vikur og mánuði, sem hljóta almennt að vísa launafólki veginn. Samhljómur er meðal aðildarfélaga SGS um að sú launastefna, sem hefur mótast í samfélaginu, endurspeglist í kjarasamningum SGS við Samtök atvinnulífsins. Grundvallaratriði er að fólk lifi af dagvinnulaunum í stað þess að ganga sér til húðar í yfirvinnu, aukavinnu og akkorði til að framfleyta sér og sínum. Langur vinnudagur og mikið álag dregur úr framleiðni og eykur samfélagslegan kostnað. Þá á launafólk að njóta þess í launum þegar það öðlast meiri færni í starfi með reynslu og menntun. Samninganefnd Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur samningsumboð 16 verkalýðsfélaga innan SGS.  Flóafélögin 3 fara sjálf með sitt umboð. SGS er stærsta landssambandið innan Alþýðusambands Íslands og hefur um 50.000 félagsmenn innan sinna vébanda í 19 félögum. SGS var stofnað 13. október 2000 við samruna Verkamannasambands Íslands, Þjónustusambands Íslands, vegna starfsfólks í veitinga- og gistihúsum, og Landssambands iðnverkafólks.  Nánari upplýsingar: Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, símar:460 3600 / 894 0729 Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, símar:562 6410 /695 1757 Fréttatilkynning SGS
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag