Kjarasamningur samþykktur alls staðar

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamninga Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og voru samningarnir samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga í viðræðunum og hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu um samningana. Í heildina var kjörsókn rúmlega 25%, já sögðu 79,95% en nei sögðu 18,43%. Auðir seðlar voru 1,62%. Á kjörskrá voru 9.589 manns. Niðurstöðurnar voru alls staðar afgerandi og teljast samningarnir á hinum almenna vinnumarkaði sem undirritaðir voru 29. maí síðastliðinn því samþykktir hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Einingu – Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Samstöðu stéttarfélagi, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Þórshafnar. Niðurstöður atkvæðagreiðslu SGS 22062015 (PDF) Niðurstöður atkvæðagreiðslu allra aðildarfélaganna, þ.m.t. Flóabandalagsins og Stéttarfélags Vesturlands (PDF) Uppfærð frétt: Kjarasamningurinn var einnig samþykktur hjá þeim fjórum aðildarfélögum sem veittu SGS ekki umboð en eru innan sambandsins. Flóabandalagið (Efling, Hlíf, og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis) samþykkti samninginn með 78,9% greiddra atkvæða og Stéttarfélag Vesturlands samþykkti samninginn með 87,24% greiddra atkvæða.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)