Landsvirkjun samþykkir keðjuábyrgð

Því ber að fagna að Landsvirkjun hefur samþykkt reglur um keðjuábyrgð, en reglunum er ætlað að tryggja að allir sem vinni fyrir Landsvirkjun á óbeinan hátt, hjá verktökum, undirverktökum eða starfsmannaleigum, njóti réttinda og kjara í samræmi við lög og kjarasamninga. Verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir þessum reglum í langan tíma og Starfsgreinasambandið hvetur önnur opinber fyrirtæki og stofnanir til að setja sér slíkar reglur líka. Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að: "Stjórn Landsvirkjunar samþykkti reglurnar á fundi sínum í lok ágúst. Ákvæði um ábyrgð verður héðan í frá sett inn í alla innlenda samninga Landsvirkjunar um innkaup, þ.e. verksamninga, vörusamninga og samninga um kaup á þjónustu. Samkvæmt ákvæðinu, sem sett verður inn í samninga Landsvirkjunar, skal verktaki tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við samninginn, gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Að auki ber verktaki ábyrgð á og skal hafa í gildi og viðhalda tryggingum fyrir tjóni vegna slysa, veikinda, sjúkdóma, sjúkrakostnaðar eða dauða sem starfsmenn verktaka verða fyrir og rekja má til framkvæmda. Verktaki ber ábyrgð á að undirverktakar og starfsmannaleigur og starfsmenn þeirra hafi samskonar tryggingar. Hingað til hafa samningar fyrirtækisins kveðið á um að mótaðilar – verktakar, undirverktakar og starfsmannaleigur – fari í öllu eftir lögum og samningum sem gilda á vinnumarkaði, en með nýja ákvæðinu er ábyrgðin nánar skilgreind, auk þess sem  Landsvirkjun fær úrræði til að framfylgja því að reglunum sé fylgt, þar sem það kveður á um viðurlög, brjóti mótaðili gegn ákvæðinu eða veiti ekki umbeðnar upplýsingar."
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag