Mansalsverkefni hlýtur styrk úr jafnréttissjóði

Þann 19. júní var úthlutað 100 milljónum úr jafnréttissjóði og hlaut verkefni sem Starfsgreinasambandið er í forsvari fyrir 2 milljónir. Verkefnið heitir „Gegn mansali – samvinna yfir landamæri“ og er markmið verkefnisins að auka þekkingu hér á landi á mansali, miðla þeirri vinnu sem unnin hefur verið síðustu tvö árin og styrkja tengsl við erlenda aðila til að auðvelda samstarf í framtíðinni. Styrkurinn verður nýttur til að koma á fundi með norrænum samstarfsaðilum innan verkalýðshreyfingarinnar, löggæslunnar og félagsþjónustunnar. Það fjallar um að búa til Norrænan vettvang fyrir þessa aðila til að hittast og fá upplýsingar um bestu aðferðirnar á hverjum stað til að berjast gegn mansali. Í því skyni er ætlunin að halda samnorrænan fund á haustdögum 2016 og í framhaldinu fræðslufund fyrir alla þá fjölmörgu aðila hér innanlands sem þurfa að vera vel upplýstir um stöðu mála. Verkefnið er einnig hugsað sem upptakturinn að þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi til að berjast gegn mansali. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands tók við styrknum við hátíðlega athöfn í Iðnó ásamt Öldu Hrönn Jóhannsdóttur aðallögfræðingi Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Eddu Ólafsdóttur, sérfræðingi í málefnum innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda hjá Reykjavíkurborg. Hér má sjá lista yfir öll verkefnin sem hlutu styrk. styrkþegar 2016 jafnréttissjóður 2            
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)